16 nóv. 2004Í kvöld, fimmtudagskvöld, eru fjórir leikir á dagskrá í Intersport-deildinni. Stórleikur kvöldsins er væntanlega leikur UMFN og Snæfells í Njarðvík, en viðureignnir þessarra liða urðu eftirminnilegar í úrslitakeppninni í fyrra. Torfi "bróðir" varð frægur í körfuboltaheiminum eftir þær viðureignir, en hann var með lukkuskeifu á leikjunum og boðaði mikinn viðsnúning þegar Snæfell var langt undir. Það gekk eftir í a.m.k. kosti tvígang og Snæfell fór í úrslitaleikina gegn Keflavík. Á [v+]http://www.umfn.is/karfan/[v-]vef Njarðvíkinga[slod-] er viðtal við Torfa, en hann er stuðningsmaður Snæfells nr. 1. Hann lætur sig eflaust ekki vanta á leikinn í kvöld og verður örugglega með skeifu þrátt fyrir að vera með bros á vör. Aðrir leikir kvöldsins eru KFÍ - ÍR, Fjölnir - Skallagrímur og Tindastóll - Hamar. í 1. deild kvenna mætast KR - UMFG og ÍS - Þór Þ í 1. deild karla. mt: "Torfi bróðir" með skeifuna góðu.